Lestur auðgar lífið - Við skorum með lestri
Í næstu viku, dagana 28. apríl - 4. maí, fer fram sameiginlegur lestrarsprettur í Norðlingaskóla þar sem allir nemendur í 1. -10. bekk og starfsfólk skólans taka þátt í. Markmið verkefnisins er að efla lestrargleði, styrkja lestrarþol og skapa jákvæða sameiginlega upplifun innan skólans.
Að þessu sinni er lestrarspretturinn unninn í skemmtilegu samstarfi við fótboltadeild Fylkis, þar sem lestur, líðan og hreyfing eru tengd saman á lifandi hátt. Lestrarspretturinn ber heitið:
Lestur auðgar lífið - Við skorum með lestri
Fyrirkomulag
Nemendur safna "boltum" fyrir lestur yfir vikuna. Hver bolti samsvarar ákveðnum mínútufjölda, sem fer eftir aldri:
. 1.-2. bekkur: 10 mínútur = 1 bolti (gulur)
. 3.-4. bekkur: 15 mínútur = 1 bolti (rauður)
. 5.-7. bekkur: 20 mínútur = 1 bolti (grænn)
. 8.-10. bekkur: 25 mínútur = 1 bolti (blár)
. Starfsfólk skólans: 30 mínútur = 1 bolti (appelsínugulur)
Markmiðið er að fylla sameiginlegt mark í Mörkinni, aðalsal skólans, af pappírsboltum sem búnir eru til í skólanum í mismunandi litum eftir árgöngum.
Allir nemendur fá sérstakt skráningarhefti þar sem lestur er skráður, bæði heima og í skóla. Nemandinn les eins mikið og hann getur (upphátt og/eða í hljóði) og lesturinn er skráður í skráningarhefti þ.e. mínútufjöldi í skóla og heima ásamt heiti bóka. Forráðamenn eru beðnir um að ýta undir heimalestur og aðstoða börn sín við skráningar í heftið. Umsjónarkennari tekur saman mínútufjölda lesturs og merkir skammstöfun sína inn í skráningarheftið sem sýnir nemandanum hversu marga bolta hann hefur náð. Nemandi má lita boltana (sbr. lit árgangs) í sínu hefti.
Þegar að lesið er fyrir nemendur á einnig að skrá þær mínútur.
Opnunarhátíð lestrarspretts 28. apríl kl. 09:15
Skólastjóri setur hátíðina í aðalsal skólans. Þjálfarar meistaraflokks karla/kvenna í fótbolta koma og ræða áhrif lesturs á líkama og sál. Leikmenn í meistaraflokki karla/kvenna segja stuttlega frá uppáhalds barna- og/eða unglingabókum þeirra og lesa brot úr bókunum.
Lokadagur lestrarspretts 4. maí
Þjálfarar og leikmenn koma aftur í skólann inn á námssvæði nemenda og afhenda viðurkenningu (sameiginlega frá skóla og Fylki) með kennurum og stjórnendum. Við hvetjum starfsfólk og nemendur til að klæðast litum síns árgangs þennan dag (sjá liti hvers árgangs hér að ofan). Einnig verður boðið upp á pítsuveislu í hádeginu fyrir nemendur.
Við hvetjum ykkur til að styðja við lestur barna ykkar heima, hver mínúta skiptir máli.
Lestur auðgar lífið, nú skorum við saman með lestri.
Með bestu kveðju,
stjórnendur og kennarar í Norðlingaskóla.