Ljóðakeppni
Í haust var verið að vinna með ljóð í íslensku í unglingadeildinni. Því ferli lauk svo með því að nemendur áttu að semja ljóð og máttu gera það annað hvort sem einstaklings- eða hópaverkefni.
Ljóðunum var svo skilað inn í keppni sem heitir Málæði sem er haldin á vegum List fyrir alla.
Þær Jóhanna, Rakel og Saga í 10. bekk voru svo þess heiðurs aðnjótandi að ljóðið þeirra var valið sem eitt af þremur sigurljóðunum þetta árið. Þær útbjuggu einnig laglínu fyrir ljóðið sitt og hingað komu svo þeir Vignir Snær Vigfússon og Hreimur Örn Heimisson sem aðstoðuðu þær og námshópinn þeirra í því að fullgera lagið. Þau bættu einnig við textann og sungu inn hluta lagsins.
RÚV var á staðnum og tók upp bæði þetta ferli og einnig hluta af tónlistarmyndbandi sem verður frumflutt á RÚV sunnudaginn 15. nóvember.
Módís, nemandi í 10. bekk, gerði svo fallegt málverk í sumarlegum blæ og mun sú mynd fylgja laginu á Spotify þar sem þið munuð geta hlustað á lagið sem ber heitið Brot úr sumri.
Það er svo sannarlega hæfileikaríkir nemendur hér hjá okkur og við erum stolt af þeim!
N